Flm. (Kristinn H. Gunnarsson):
Herra forseti. Á þskj. 819 hef ég leyft mér að bera fram frv. til laga um breytingu á lögum nr. 36/1993, um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Aðrir flm. eru auk mín hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson, Margrét Frímannsdóttir og Hjálmar Jónsson. Frv. er afar stutt, aðeins tvær greinar og er í fyrri grein þess kveðið á um það að bæta inn í gildandi lög eftirfarandi málslið, svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Kirkjugarðsstjórn getur ákveðið sérstakan minningarreit í kirkjugarði vegna horfins manns sem úrskurðaður hefur verið látinn og nýtur sá reitur sömu friðhelgi og grafreitur.``
Í síðari grein er kveðið á um að lög þessi öðlist þegar gildi.
Með frv. fylgir örstutt greinargerð sem skýrir nákvæmlega hvað fyrir flm. vakir en þar segir, með leyfi forseta:
,,Í gildandi lögum er ekki að finna ákvæði er heimilar minningarreit í kirkjugarði vegna látins manns þegar lík hans finnst ekki eða næst ekki. Er lagt til með frumvarpi þessu að úr því verði bætt.``
Herra forseti. Frv. þetta er stutt, skýrt og hnitmiðað og ég hygg að ekki þurfi mikla umræðu um efnisatriði þess. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.