Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég minni hv. þm., síðasta ræðumann, á að tillagan gengur út á að nefnd um dómarastörf skuli hafa það sem eina af forsendum sínum að meta hvort það samræmist störfum dómara eða ekki að vera í leynireglu. Engin tilraun er gerð til þess að skilgreina við hvaða leynireglur er átt og við gerum ráð fyrir að nefndin geri það. Þess vegna skiptir engu máli hvort við erum eingöngu að meina frímúrararegluna eða einhverjar fleiri eða hvort við flutningsmenn erum sérfræðingar í þessum reglum eða ekki.
Það er kannski mjög eðlilegt að hv. síðasti ræðumaður sé ekki tortrygginn á þessar reglur því að hann þekkir a.m.k. sumar þeirra innan frá. En það er einmitt þagnarskyldan sem við hin upplifum, þessi leynd sem veldur tortryggni og það er nákvæmlega það sem er að mínu mati óþolandi fyrir hvern og einn dómara. Þess vegna held ég að dómarastéttinni væri mikill greiði gerður ef þessi forsenda færi inn hjá viðkomandi nefnd.