Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna þeirrar fyrirspurnar sem hefur verið borin fram get ég sagt að þess er ekki að vænta að á þinginu komi af hálfu ríkisstjórnarinnar frv. um breytingar á því atriði sem hv. þm. spurðist fyrir um. Þessi mál eru til stöðugrar skoðunar og fastanefnd er starfandi í ráðuneytinu um réttarfarsmálefni sem hefur unnið gífurlega mikið starf á undanförnum árum og viðfangsefni eins og þetta er stöðugt til umfjöllunar í þeirri nefnd. Þess er ekki að vænta að á þessu þingi, eins og að var spurt, komi fram breytingartillögur um þetta.