Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Þetta var skarplega athugað hjá hæstv. dómsmrh. og bendir til þess að hann skilji hlutina sínum sérstæða skilningi stöðugt. Ég ætla svo sem ekki að blanda mér í það. Mér finnst þetta ekki efnisleg athugasemd af hans hálfu og breytir engu. Aðalatriðið í mínum huga er að ef sveitarstjórn og stjórn ÁTVR vilja opna áfengisútsölu þá geta þau gert það og það er alveg augljóst mál að ef sveitarstjórn sættir sig við að opnuð sé áfengisútsala við hliðina á veitingastað og sé opin á sama tíma og veitingastaðurinn, t.d. að kvöldi eða nóttu, eða við hliðina á apóteki, þá verður það gert eins og þetta frv. lítur út. Það er það sem hér er á ferðinni og það þýðir ekkert að reyna að drepa því á dreif með ,,spíssfindugheitum``. Það leysir engan vanda.