Húsnæðismál

Mánudaginn 09. mars 1998, kl. 18:55:34 (4505)

1998-03-09 18:55:34# 122. lþ. 82.16 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv., Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 122. lþ.

[18:55]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Vegna orða hv. 5. þm. Reykn. vill forseti ítreka það sem hann sagði fyrr að öllum formönnum þingflokka átti að vera ljóst að gert væri ráð fyrir því að hér yrði fundur í kvöld þannig að það á ekki að koma nokkrum hv. þm. á óvart.

En í ljósi þeirra óska sem hafa komið fram og í trausti þess að gott samkomulag geti orðið um framhaldið hefur forseti hugsað sér að gera hlé fyrr en ákveðið hafði verið og fresta þessum fundi til klukkan hálfníu.