Útboð á hafrannsóknaskipi

Miðvikudaginn 11. mars 1998, kl. 13:51:09 (4563)

1998-03-11 13:51:09# 122. lþ. 84.3 fundur 486. mál: #A útboð á hafrannsóknaskipi# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., sjútvrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 122. lþ.

[13:51]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins minna á að í næsta máli á dagskrá er fyrirspurn sem lýtur að óskum um að greint verði frá rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun sem tekin var í þessu efni, en ein slík fyrirspurn kom fram í því dagskrármáli sem nú er til umræðu. En ég vil aðeins árétta vegna yfirlýsinga hv. fyrirspyrjanda að af hálfu Ríkiskaupa hefur komið fram að þrátt fyrir marga fundi og ítrekuð tilmæli Ríkiskaupa um að fá umbeðnar upplýsingar til svara við tilteknum spurningum þá hafi þau svör ekki fengist frá þeim aðila sem hér átti hlut að máli. Mér sýnist því að þær fullyrðingar sem hv. þm. fór með fái ekki staðist í ljósi þeirra upplýsinga.