Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Já, ég tel mjög mikilvægt að nefndin fari mjög gaumgæfilega ofan í þessu mál. Ef ég man rétt lagði umboðsmaður barna til að þessi mál fyrntust ekki, eða til vara að fyrningarfrestur væri 25 ár. Það er því um mjög mikinn mun að ræða á hennar tillögum og stjfrv. Frv. sem fyrir liggur frá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og okkur þingkonum stjórnarandstöðunnar er einhvers staðar þarna á milli, a.m.k. munar þarna nokkrum árum þannig að ég tel að mjög mikilvægt sé að hækka þetta eitthvað frá því sem stjfrv. gerir ráð fyrir.