Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Sífellt hafa komið fram meiri kröfur um fræðslu í skólum, fræða á krakkana um umhverfismál, umferðarmál o.s.frv. Hér er eitt málið í viðbót (Gripið fram í) þ.e. fræðsla í fjármálum. Ég get ekki annað en tekið undir það. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt mál og er mjög vanrækt í skólunum. Ég hef hitt 18 ára unglinga, nýorðna fjárráða, sem fá tékkhefti og segja bara --- nú gefum við sko út tékka, þetta eru hreinar tekjur og hægt að græða á þessu. Þeir hreinlega tala svona um þetta. Þeir átta sig ekki á því að innstæða þarf að vera fyrir tékkum og borga þarf þá til baka. Svipuð er afstaðan til vísakorta og fleira. Það er því mjög brýnt að upplýsa ungmennin um að lán er ekkert annað en ráðstöfun á framtíðartekjum. Og menn gera það ekkert voðalega oft því að framtíðartekjurnar vaxa ekki, þær eru oftast fyrir fram ákveðnar.
Ég get því tekið heils hugar undir það að fræða ætti um þetta í skólunum og það er ég viss um að við fengjum miklu betra fólk út úr skólunum ef það kynni eitthvað í fjármálum, auk þess sem við hindruðum þá harmleiki sem hafa sprottið af þeim málum sem við erum að ræða um hér.