Siv Friðleifsdóttir (andsvar):
Virðulegur forseti. Það er gleðilegt að hv. þm. Össur Skarphéðinsson skuli vilja vísa þessu máli til heilbr.- og trn. Hann er sammála mér í því og það er aldrei að vita nema við komumst að sameiginlegri niðurstöðu. Minn fyrirvari lýtur að því að ég er ekki sannfærð um að við séum að stíga rétt skref. Ég vil skoða það sérstaklega í heilbr.- og trn. og fá frekari gögn.
Hv. þm. talaði mjög digurbarkalega um að þetta væri gott mál og að aðrir hefðu kannski ekki haft kjark til þess að leggja það fram. Ég vil því spyrja hv. þm., fyrst hann hefur starfað í þingflokki jafnaðarmanna um nokkurt skeið: Hví var þetta mál ekki lagt fram fyrr í tíð Alþfl. í ríkisstjórn. Ég hef undir höndum frv. til laga, drög að þessum texta og ég bara spyr: Af hverju var þetta ekki lagt fram á sínum tíma? Þetta mál var alveg tilbúið. Hverjir guggnuðu?