Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Aðeins örstutt spurning og hún er sú: Hefur ríkisstjórnin fallið frá því að hætta þingi 22. apríl? Það er nauðsynlegt að það komi fram. Stefnir hún ekki enn að því eins og stjórnarandstaðan taldi að hefði verið niðurstaða hennar og náðst hafði í næsta góðu samráði við stjórnarandstöðuna á sínum tíma fyrir nokkrum vikum?