Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Að því er varðar fyrirspurn hv. þm. um kostnað vegna stækkunar Atlantshafsbandalagsins, þá eiga þær tölur sem ég nefndi í ræðu minni eingöngu við þessi þrjú ríki. Meginhluti þessa kostnaðar varðar mannvirkjagerð eða um 1,3 milljarðar Bandaríkjadala af 1,5 milljörðum Bandaríkjadala. Þetta varðar uppbyggingu flugvalla og margs konar mannvirkjagerð sem er nauðsynlegt að ráðast í í þessum þremur löndum og það er alveg ljóst að þegar að því kemur að fleiri lönd ganga inn í Atlantshafsbandalagið, þá verður jafnframt nauðsynlegt að ráðast í margvíslega mannvirkjagerð í þeim löndum. Það mun ekki verða kleift fyrir þessi lönd að taka þátt í því nema með sameiginlegu átaki Atlantshafsbandalagsins í heild.
Eins og vitað er stendur Mannvirkjasjóðurinn að margvíslegum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli á hverju einasta ári og með sama hætti mun Mannvirkjasjóðurinn standa að mannvirkjagerð í þeim tilgangi í öðrum löndum, þar á meðal í þeim löndum sem munu ganga inn.
Það liggur hins vegar alveg ljóst fyrir að ef ekki væri farið í þessa mannvirkjagerð á vegum Atlantshafsbandalagsins hefðu löndin sjálf þurft að ráðast í mikið af henni ein og sér.