Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef að sjálfsögðu ekkert á móti því að Alþingi álykti um mál eins og þetta og taki stefnumarkandi ákvarðanir. Það er að sjálfsögðu Alþingis að ákveða það. En ég bendi á að ég hef lagt fram í ríkisstjórn stefnumörkun í þessu máli sem ég hef gert grein fyrir hér og sú stefnumörkun liggur fyrir og það er að sjálfsögðu til að styrkja málið að Alþingi álykti um það líka hvort sem það verður nákvæmlega með þeim hætti eða einhverjum öðrum. Þessi stefnumörkun liggur fyrir og að sjálfsögðu er rétt að utanrmn. fái að fjalla um hana í tengslum við þetta mál. Ég bendi hins vegar á að Alþingi hefur oft áður ályktað um þetta mál og reynslan sýnir að það er ekki nóg. Það þarf líka að tryggja fjármuni til þessara verkefna. Ég tel þó að vaxandi skilningur sé á þessu máli og það er vel, ekki bara hér á Alþingi heldur almennt í þjóðfélaginu.
Hingað kom til lands fyrir stuttu síðan virðulegur breskur þingmaður, David Steel, og flutti fyrirlestur um þróunarmál upp í háskóla. Það vakti athygli mína hve hann var vel sóttur og hve mikill og lifandi áhugi var um þessi mál hjá þeim sem sóttu þennan fund. Þetta er að sjálfsögðu málefni sem utanrmn. þarf að ræða og síðan þarf að ákveða hvort rétt sé að álykta um málið. En ég óttast ekkert um það því ég tel allar forsendur vera til þess að ná um það samstöðu.