Birting milliríkjasamninga

Mánudaginn 23. mars 1998, kl. 15:08:44 (4989)

1998-03-23 15:08:44# 122. lþ. 92.1 fundur 266#B birting milliríkjasamninga# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 122. lþ.

[15:08]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Hér er um óundirbúnar fyrirspurnir að ræða og ég geri ekki ráð fyrir því að hv. þm. geti gengið út frá því að ráðherra geti svarað nákvæmlega fyrir um það með vissu hvaða samningar þetta eru nema þá ef þingmaðurinn hefði a.m.k. gert ráðherra viðvart um það fyrir fram. Ég fékk engar slíkar upplýsingar og ég er þess vegna ekki með þær í höndum. En ég skal útvega þingmanninum þær. En ef hann ætlaðist til þess að ég svaraði því nákvæmlega hér þá hefði hann a.m.k. getað látið mig vita um málið fyrir tíu mínútum síðan.