Hvalveiðar

Mánudaginn 23. mars 1998, kl. 15:20:17 (4996)

1998-03-23 15:20:17# 122. lþ. 92.1 fundur 268#B hvalveiðar# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 122. lþ.

[15:20]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Varðandi fyrri lið fyrirspurnarinnar er það að segja að embættismenn hafa rætt þau sjónarmið sem fram komu í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við nokkrar erlendar ríkisstjórnir og þar á meðal fulltrúa Bandaríkjastjórnar.

Varðandi síðari liðinn vænti ég þess að samráðshópurinn sem var skipaður geti komið saman innan tíðar til þess að fjalla frekar um framhald málsins.