Stækkun járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga

Mánudaginn 23. mars 1998, kl. 15:36:26 (5008)

1998-03-23 15:36:26# 122. lþ. 92.1 fundur 270#B stækkun járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 122. lþ.

[15:36]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Hv. þm. gleymir því í umræðunni um samkomulagið frá Kyoto að engin þjóð hefur enn þá gerst aðili að því samkomulagi. Og þótt undirritunarferlið sé farið af stað eru staðfestingar og annað slíkt eftir og við höfum sagt: Við munum bíða og sjá til með ákvörðun um það hvort Íslendingar gerist aðilar að því samkomulagi eða ekki, hvað verður um það sérákvæði sem þarna var tekið sérstaklega fram að skyldi gilda um Ísland, sérákvæði um Ísland.