Kjaramál fiskimanna

Föstudaginn 27. mars 1998, kl. 20:35:51 (5224)

1998-03-27 20:35:51# 122. lþ. 96.1 fundur 603. mál: #A kjaramál fiskimanna# frv. 10/1998, GHall (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 122. lþ.

[20:35]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Þegar þessi mál hafa komið til umræðu á Alþingi hefur afstaða mín verið sú sama og verður hér nú. Ég tel að það hafi mátt halda öðruvísi á málum en raun ber vitni og er þá ekki hallað á neinn þó svo hafi farið sem fór. En svo ég sé sjálfum mér samkvæmur, eins og ég hef áður verið, þá greiði ég atkvæði gegn þessu frv.