Kjaramál fiskimanna

Föstudaginn 27. mars 1998, kl. 20:37:13 (5226)

1998-03-27 20:37:13# 122. lþ. 96.1 fundur 603. mál: #A kjaramál fiskimanna# frv. 10/1998, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 122. lþ.

[20:37]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Við kvennalistakonur áteljum harðlega frv. um kjaramál fiskimanna sem nú á að fara að samþykkja sem lög. Enn einu sinni á að setja lög á kjaradeilur sjómanna. Við mótmælum þeirri lagasetningu en munum sitja hjá við atkvæðagreiðslur um hin frv. þrjú sem hefur verið breytt í veigamiklum efnisatriðum frá því að þau voru lögð fram. Sú leið sem hér er valin verður því að teljast alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.