Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tek alveg undir það með hv. þm. að yfirmenn stofnana og þar á meðal lögreglunnar í Reykjavík bera að sjálfsögðu ábyrgð á stjórnun embættisins og eftirliti með því að reglum sé framfylgt og að hefðbundnum vinnubrögðum sé fylgt og regla sé í öllu starfi embættisins.
Í þessu tilfelli getur það komið til álita hvort einstakir lögreglumenn eða yfirmenn lögreglunnar hafi gerst brotlegir við hegningarlög eða starfsmannalög og sú úttekt sem ríkislögreglan hefur gert leiðir þá staðreynd í ljós að tiltekin efni eru horfin. En þar er ekki varpað grun á einstaka aðila vegna ábyrgðar á því að efnin vantar og við það taldi ég að væri ekki unnt að una og á þessum málum yrði að taka af fullri festu og því var settur nýr ríkislögreglustjóri til að ganga úr skugga um þetta tvennt, um ábyrgð samkvæmt hegningarlögum og ábyrgð samkvæmt starfsmannalögum. Ég hef litið svo á að þegar rannsókn hans er komin á það stig að í ljós kemur hvort grunsemdir vakna varðandi ábyrgð samkvæmt hegningarlögum á tilteknum atvikum eða ekki, þá sé rétti tíminn til að taka afstöðu til spurninga af því tagi sem hv. þm. varpaði fram og þegar leitt hefur verið í ljós í rannsókninni hvernig ábyrgð samkvæmt starfsmannalögum og skyldum yfirmanna er háttað sé rétti tíminn til að taka ákvarðanir í samræmi við þær niðurstöður. Til að taka slíkar ákvarðanir var sú rannsókn nauðsynleg sem ákveðin hefur verið.