Loftferðir

Mánudaginn 30. mars 1998, kl. 19:20:25 (5290)

1998-03-30 19:20:25# 122. lþ. 98.7 fundur 201. mál: #A loftferðir# (heildarlög) frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 122. lþ.

[19:20]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Áðan tók ég fram að ég teldi að Flugmálastjórn væri óheimilt að verja fjármunum sínum án heimildar í fjárlögum eða flugmálaáætlun. Ég hygg að það svari til fulls spurningu hv. þm. en er reiðubúinn til að ræða milli 2. og 3. umr. hvort rétt sé að gera þetta ákvæði gleggra að því leyti.