Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir að viðræðurnar um Evrópska efnahagssvæðið voru hafnar á sínum tíma þegar Framsfl. hafði forustu í ríkisstjórn. Það hefur því alltaf legið fyrir að Framsfl. taldi rétt að ganga til þeirra viðræðna. Við gagnrýndum hins vegar málsmeðferðina og margt sem þáv. ríkisstjórn gerði. Hún hafði þá enga samvinnu við stjórnarandstöðuna og okkur um áframhald þeirrar vinnu.
Vissulega geta menn farið út í að gera úttekt á þessu öllu saman en mér finnst ekki rétt að utanrrn. fari að stunda úttekt á slíkri pólitískri sagnfræði. Mér finnst það vera frekar sagnfræðinga og mér hefur nú heyrst að þingmenn Alþfl. væru tiltölulega duglegir við það á Alþingi að minna á afrek sín þannig að ég veit ekki hvort þarf fleiri til í þeim efnum. Ég get vel tekið undir með hv. þm. að það var margt mjög vel gert í þeim samningi og staðið vel að málum á margan hátt. En ég tel hins vegar að það hefði mátt standa öðruvísi að málum og ég vitna til þeirrar gagnrýni sem ég setti fram á málefnalegan hátt á Alþingi á sínum tíma.
Eins og hv. þm. veit lagðist ég ekki gegn þessum samningi og ég tel að Íslendingum hafi verið nauðsynlegt að taka þátt í því samstarfi, enda var ég í hópi þeirra manna sem voru stuðningsmenn þess að hefja þær viðræður. Hv. þm. ætti að vita það þó að hans minni í þessum efnum nái eingöngu til síðustu ríkisstjórnar og er það miður.