Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna þá er það rétt að hann hefur ekki verið lögleiddur. Að því máli hefur verið unnið í dómsmrn. en því ekki lokið.
Að því er varðar ávana- og fíkniefnamál þá er í undirbúningi aukaallsherjarþing hjá utanrrn. og ýmsum öðrum ráðuneytum. Í sambandi við þessi miklu mál, þ.e. fíkniefnamál og glæpamál, finnst mér koma til álita að þingmenn sæki þingið ásamt öðrum sendimönnum.
Varðandi stríðsglæpadómstól fyrir Rúanda þá kannast ég ekki við að ástæða hafi verið til að setja eitthvað í lög í því sambandi. Þetta mál hefur ekki verið beinlínis í forgangi í utanrrn, það er rétt, en við styðjum þennan dómstól og við höfum greitt til hans. Við höfum einnig stutt að settur yrði upp alþjóðastríðsdómstóll.
Að því er varðar kvennafund í New York þá sótti fulltrúi félmrn. þennan fund ásamt fulltrúum frá fastanefndinni í New York.
Það verður að viðurkennast að vestnorræna samstarfið hefur ekki verið mjög mikið en þó farið vaxandi og umræður farið fram í ráðherranefnd Norðurlandaráðs um það. Áhugi fyrir Norðurskautsráðinu og norðurskautssamstarfinu hefur aukist og útspil Finna er m.a. vitnisburður um það. Hið sama má segja um samstarfið í kringum Barentshafið og margvíslegt annað samstarf. Ég tel því að þetta hafi farið heldur batnandi.