Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Hér er um að ræða atriði sem lýtur að innra starfi skólanna og slík lög verða vitaskuld ekki sett nema það sé vilji til þess og áhugi af hálfu stjórnenda skóla og ekki nema fyrir liggi að menn telji eðlilegt að skólarnir fari inn á þessa braut. Ég tel því að það þurfi að svara ýmsum spurningum um þessi atriði áður en hægt er að gefa einhverjar yfirlýsingar um að hafinn verði undirbúningur að löggjöf af þessu tagi.