Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Um nokkuð langt skeið hefur verið mikil óvissa um tilvist og starfsemi umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Um tíma stóð til að leggja umferðardeildina niður og það var ekki fyrr en við snöfurleg viðbrögð m.a. í fjölmiðlum sem niðurstaðan varð sú að þau áform voru sett á ís a.m.k. í bili. Þau munu alla vega ekki vera á dagskrá ráðuneytisins um þessar mundir.
Í tengslum við málefni umferðardeildarinnar er á það bent að nú er í gildi metnaðarfull umferðaröryggisáætlun til ársins 2001. Umferðaryfirvöld t.d. í höfuðstað landsins, Reykjavík, hafa einnig samþykkt myndarlega umferðaröryggisáætlun sem þau hafa verið að kynna þar sem sett eru margvísleg markmið um lagfæringar á umferð í borginni, m.a. um stórfellda fjölgun 30 km svæða í íbúðarhverfum o.fl.
Þá hafa verið settar upp myndavélar á gatnamótum eins og menn þekkja í öryggisskyni. En á sama tíma og þetta er í gangi birtast sérkennilegar reglugerðir um einkennisbúninga lögreglumanna og um búnað lögreglumanna í einstökum atriðum, um merki þeirra í einstökum atriðum, m.a. um hverjir megi hafa eyrnalokka og hversu stóra. Þar kemur fram að konur mega hafa mjög litla eyrnalokka, alls ekki stóra, en karlmenn enga eyrnalokka. Þannig láta yfirvöld sér annt um hvað eina í fari umferðarlögreglumanna í þessu plássi og er það vel.
Vinnubrögð dómsmrn. í þessu máli og yfirmanna lögreglunnar hafa hins vegar oft verið, að mati þeirra sem best þekkja til, býsna fljótfærnisleg og með þeim hætti að ýtt hefur undir öryggisleysi hjá þeim sem fara með umferðarstjórn og umferðarmál hjá lögreglunni. Af þeim ástæðum eru bornar fram þrjár fyrirspurnir til hæstv. dómsmrh.:
Í fyrsta lagi. Eru áform um það hjá ráðuneytinu eða lögreglunni í Reykjavík að leggja niður umferðardeild lögreglunnar?
Í öðru lagi. Kemur til greina að mati ráðherra að auka sjálfstæði deildarinnar innan lögreglunnar, m.a. í þeim tilgangi að ná markmiðum umferðaröryggisáætlunar til ársins 2001?
Í þriðja lagi. Telur ráðherra að reglugerð um einkennisbúninga, merki og búnað lögreglumanna tryggi nægilega vel öryggi þeirra við umferðarstjórn?