Yfirskattanefnd

Þriðjudaginn 14. apríl 1998, kl. 15:46:16 (5454)

1998-04-14 15:46:16# 122. lþ. 103.4 fundur 641. mál: #A yfirskattanefnd# frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 122. lþ.

[15:46]

Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þó að það teljist nú kannski hálfgerð nauðgun á þingsköpum að ræða þessi mál hér og nú vil ég samt nota tækifærið til að þakka hv. þm. fyrir þetta andsvar og svara því á þann veg að ég hef notið þess í mínu starfi sem fjmrh. og sem þingmaður að eiga samstarf við hv. þm. bæði sem samherja og andstæðing þannig að hvergi hefur skugga borið á.