Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Við ræðum grafalvarlegt mál, mál sem við megum ekki og eigum ekki að afgreiða með upphrópunum, eigum ekki að afgreiða með mannfórnum heldur að taka á með yfirvegun. Allt þetta mál sýnir ljóslifandi það mikilvæga hlutverk sem við hér inni, sem Alþingi Íslendinga gegnir hvað varðar eftirlit með framkvæmdarvaldi og stofnunum ríkisins. Þess vegna er það umhugsunar- og áhyggjuefni að við, þingmeirihluti hér hefur búið þannig um hnúta nú að Alþingi Íslendinga getur ekki lengur gegnt eftirlitshlutverki með þeirri stofnun sem við erum að ræða, Landsbanka Íslands hf. Með öðrum orðum hefur verið hallað aftur dyrum þegar kemur að eðlilegri almennri upplýsingagjöf af þeim toga sem við ræðum og Ríkisendurskoðun hefur gert uppskátt um.
Ég hef lagt fram frv. til að taka á þessu vandamáli og mælti raunar fyrir því í dag og ég vænti þess að til þess sé pólitískur vilji að menn bæti þarna úr og tryggi að Landsbanki Íslands, Búnaðarbanki Íslands og önnur fyrirtæki í eigu ríkisins veiti þær upplýsingar sem þingið kallar eftir hér eftir sem hingað til.
Ég ætla ekki að ræða efnisatriði þeirrar greinargerðar sem menn hafa helst staldrað við. Á hinn bóginn ætla ég að eyða nokkrum orðum í það blað sem fylgdi greinargerðinni og á er að finna svokallaðar skýringar bankaráðs Landsbanka Íslands. Það er aumlegt yfirklór sem þar er á ferð og satt að segja átakanlegt að hæstv. viðskrh. hafi kosið að verja þetta yfirklór, verja þetta bankaráð og stilla sér upp við hlið þess. Það var pólitísk yfirlýsing af hans tagi hér áðan og hann verður að standa við og búa við.
Megininnihald greinargerðar bankaráðsins er þrenns konar: Bankaráðið vissi ekki, vildi ekki vita eða átti ekki að vita og vísar í raun allri ábyrgð af höndum sér, þeirri ábyrgð sem er skýlaus í lögum, nefnilega að fara með yfirstjórn bankans. Þá hlýtur maður auðvitað að gagnálykta eftir að hafa lesið plaggið í gegn og spyrja hæstv. viðskrh.: Hvert er þá í raun hlutverk bankaráðsins? Hvaða hlutverki gegnir það við yfirstjórn bankans ef ekki að hafa eftirlit og umsýslu með þeim hlutum sem er að finna í greinargerð Ríkisendurskoðunar? Þetta er hin áleitna spurning og því hlýtur maður að þráspyrja hvort hæstv. viðskrh. ætli sér að standa við þá yfirlýsingu að hann ætli að hvítþvo bankaráðið af allri ábyrgð á því máli sem er til staðar. Er það pólitísk yfirlýsing við þessar umræður?