Svör við fyrirspurn um kaup Landsbankans á veiðileyfum í Hrútafjarðará

Miðvikudaginn 29. apríl 1998, kl. 10:46:02 (5882)

1998-04-29 10:46:02# 122. lþ. 114.92 fundur 328#B svör við fyrirspurn um kaup Landsbankans á veiðileyfum í Hrútafjarðará# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 122. lþ.

[10:46]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Um leið og þessari umræðu um störf þingsins lýkur vill forseti taka fram að hann mun ræða nánar við hæstv. ráðherra og ríkisendurskoðanda um hvenær megi vænta svara við umbeðnum fyrirspurnum. Forseta er að sjálfsögðu kunnugt að Ríkisendurskoðun vinnur að þessum málum öllum en mun ræða þetta frekar við viðkomandi aðila.

Forseti mun síðan í samráði við þingflokksformenn ætla tíma fyrir umræður um svörin, berist þau áður en þingi verður frestað í vor.