Frumvarp um breytingu á skipulags- og byggingarlögum

Miðvikudaginn 29. apríl 1998, kl. 11:01:10 (5890)

1998-04-29 11:01:10# 122. lþ. 114.93 fundur 329#B frumvarp um breytingu á skipulags- og byggingarlögum# (um fundarstjórn), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 122. lþ.

[11:01]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill taka fram að hann er ekki hér sérstaklega að svara fyrir ríkisstjórnina og veit ekki hvort hún mun hafna slíku tilboði, það veit forseti ekki. Forseti mun ræða málið við þann ráðherra sem hefur forræði málsins en ítrekar að dagskrá þessa fundar er þegar ákveðin.