Frumvarp til skipulags- og byggingarlaga

Miðvikudaginn 29. apríl 1998, kl. 22:26:09 (5956)

1998-04-29 22:26:09# 122. lþ. 114.94 fundur 330#B frumvarp til skipulags- og byggingarlaga#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 122. lþ.

[22:26]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti hefur átt fund með formönnum þingflokka og varaforsetum og rætt um framhald fundarins. Forseti vill upplýsa að samkomulag er um að láta reyna á þingviljann á fundi í fyrramálið, um það hvort tekið verði á dagskrá næsta þingfundar þar á eftir frv. til breytinga á skipulags- og byggingarlögum. Að öðru leyti verði haldið áfram umræðu um sveitarstjórnarlagafrv.