Frsm. minni hluta félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vísa því algerlega á bug að í málflutningi jafnaðarmanna hafi falist nokkur gagnrýni á dreifbýlið, eða að þar væri á einhvern hátt gert lítið úr því fólki sem þar býr. Ég vil að menn muni að hver einasta fjölskylda í landinu er samsett af hópi fólks sem býr ýmist á þéttbýlissvæði eða í dreifbýli. Það að hafa mismunandi skoðanir á stjórnsýslu eða öðru hefur ekkert með það að gera.
Annað vildi ég líka nefna, virðulegi forseti, sem kom fram í máli þingmannsins þegar hann var að velta fyrir sér hvaða línu ætti að draga milli heimalanda og afrétta. Samvinnunefnd um svæðisskipulag er búin að draga slíka línu og hafi aðliggjandi sveitarfélög eða fulltrúar þeirra fallist á hana, þá hafa þau þegar fallist á þá línu sem gildir milli heimalanda og afrétta. Hins vegar vil ég árétta að engin leið var að fá kort með uppdrætti af þeirri línu í félmn. þótt eftir því væri leitað.