Framhald þingstarfa og þingfrestun

Mánudaginn 04. maí 1998, kl. 16:08:55 (6182)

1998-05-04 16:08:55# 122. lþ. 117.92 fundur 340#B framhald þingstarfa og þingfrestun# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 122. lþ.

[16:08]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Vegna þessarar ræðu vill forseti segja að auðvitað liggur fyrir, og er kannski það eina sem liggur fyrir, að nefndir hafa lokið störfum og fjölmörg mál eru að koma frá nefndunum og bíða umræðu. Það er samdóma álit forsn. að mikil umræða sé fram undan, svo að það raski þeirri áætlun um þinglok sem gerð var enda er ekki langt liðið á vorið og nægur tími fyrir þingið að vinna örlítið lengur.