Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Vegna þessara orða vill forseti taka fram að það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvenær þingi verður frestað. Það er ekki hægt að taka þá ákvörðun meðan umræða stendur um þetta dagskrármál og önnur sem hafa verið á dagskránni undanfarna daga.