Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Þessi tillaga jafnaðarmanna er um að landið skiptist í staðbundin sveitarfélög utan miðhálendis Íslands sem verði sjálfstæð stjórnsýslueining. Það er víðtækur stuðningur við það að þetta dýrmæta svæði verði sérstakt skipulags- og stjórnsýslusvæði og auðlindir til lands og sjávar og umráðarétturinn yfir landinu á að vera réttur komandi kynslóða.
Virðulegi forseti. Jafnaðarmenn geta ekki fallist á að deila miðhálendinu upp á milli sveitarfélaga. Það getur ekkert réttlætt að lögbinda svo afdrifaríkt ákvæði í ágreiningi við þjóð og þing. Ég segi já.