Sveitarstjórnarlög

Föstudaginn 08. maí 1998, kl. 14:50:42 (6359)

1998-05-08 14:50:42# 122. lþ. 121.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 122. lþ.

[14:50]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Meðan á 2. umr. um þetta mál stóð barst bréf frá stjórn Félags löggiltra endurskoðenda með ábendingum sem sjálfsagt er að taka til skoðunar milli 2. og 3. umr. Að mínum dómi er þar um mjög alvarlegar ábendingar að ræða sem nauðsynlegt er að skoða. Ég vil að það komi fram að þetta er ein af þeim greinum sem við munum skoða betur milli 2. og 3. umr.