Stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum

Föstudaginn 08. maí 1998, kl. 18:27:58 (6373)

1998-05-08 18:27:58# 122. lþ. 121.3 fundur 642. mál: #A stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum# frv. 38/1998, GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 122. lþ.

[18:27]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en það er eitt atriði sem ég vil minnast á. Það er talað um veiðar 1995, 1996 og 1997, og má skilja það rökfræðilega í lagafrv. að það þurfi að vera öll þrjú árin. Og mér skildist á svip ráðherrans þegar ég flutti ræðu mína að nægjanlegt væri að það væri bara eitt. Ég held að mjög mikilvægt sé að sá lagaskilningur komi fram hér frá ráðherranum.