Endurskoðun á úthlutunarreglum LÍN

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:06:33 (6417)

1998-05-11 15:06:33# 122. lþ. 124.1 fundur 366#B endurskoðun á úthlutunarreglum LÍN# (óundirbúin fsp.), GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:06]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin. Það er gott að heyra að ekki á að útkljá þessi mál í dag því að það voru síðustu fréttir sem ég fékk í hádeginu að til stæði að hafa fund í kvöld. En hæstv. ráðherra svaraði því ekki hvort hann væri sjálfur sammála þessum meginkröfum stúdenta og ég vil gjarnan heyra hans álit á því.