Uppsagnir hjúkrunarfræðinga

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:22:04 (6430)

1998-05-11 15:22:04# 122. lþ. 124.1 fundur 369#B uppsagnir hjúkrunarfræðinga# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:22]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Samkvæmt því sem ég best veit hafa aðlögunarnefndir almennt ekki lokið störfum, ekki nema nokkur hluti þeirra. Eins og fram kom í fyrra svari mínu og ég endurtek það, þá bíðum við eftir því að úrskurðarnefnd ljúki störfum sínum.

Hv. þm. spyr einnig um hvað séu ásættanleg laun. Það er ekki hægt að svara því í krónum og aurum hvað eru ásættanleg laun.