Rafmagnseftirlitið

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:41:57 (6448)

1998-05-11 15:41:57# 122. lþ. 124.1 fundur 374#B rafmagnseftirlitið# (óundirbúin fsp.), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:41]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin og ég fagna þeim alveg sérstaklega. Ég er ósammála því sem hann kom með fram í þessu máli enda stendur staðhæfing gegn staðhæfingu. En ég þakka svörin og fagna sérstaklega því að hæstv. iðnrh. vilji beita sér fyrir því í samráði við Alþingi, við iðnn. þingsins og þingmenn að fram fari óhlutdræg könnun og athugun á málinu.