Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 18:47:27 (6454)

1998-05-11 18:47:27# 122. lþ. 124.3 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, GuðjG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[18:47]

Guðjón Guðmundsson (andsvar):

Herra forseti. Það er nú kannski fullmikið sagt að við höfum haft sérstakar áhyggjur af þessu en ég tel að við höfum viljað taka fullt tillit til þessara stofnana umhvrn. og gerum það á afgerandi hátt í þessu nál. Það er auðvitað rétt hjá hv. þm. að við erum ekki sammála um þetta og virðum sjálfsagt skoðanir hvors annars í þessu máli. En ég ítreka það, eins og ég sagði hér áðan, að í nál. tel ég að sé afskaplega vel komið til móts við þetta mál. En ég tel og er sannfærður um að það sé eðlilegast að svona mál sé á forræði eins ráðuneytis og að það leiti síðan umsagnar þeirra aðila sem til þarf að leita.