Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki hér í nótt og hafði þar af leiðandi ekki hugmynd um þessa umræðu sem hér fór fram. Ég boðaði til fundar í félmn. fyrir helgi þannig að það fundarboð hefur legið fyrir í nokkra daga, þ.e. að það yrði fundur nú á þriðjudagsmorgni kl. 8.15 og að boðaðir höfðu verið nokkrir gestir. Það hafði einnig komið mjög skýrt fram að sveitarstjórnarfrv. yrði tekið inn í nefndina milli 2. og 3. umr. til þess að ræða þar nokkur atriði. Okkur tókst ekki að komast yfir nema tvö atriði morgun þannig að við þurfum að hittast aftur.
En það kemur mér mjög á óvart ef nefndarformenn þurfa að ræða það sérstaklega við forseta hvenær fundir skulu boðaðir. Það hefur ekki ríkt neitt slíkt fyrirkomulag. Það má kannski segja að þegar þingið er komið inn í þennan tíma að fundir standa nætur og daga, þá kannski þurfi menn að samræma störfin betur. Það mál sem var rætt í gærkvöldi er reyndar ekki á sviði félmn. og fulltrúar í félmn. vissu af þessum fundi. En ýmsir vilja auðvitað taka þátt í þeirri umræðu sem hér stendur yfir þannig að hér er ekki um nægilega góð vinnubrögð að ræða og ég vil staðfesta það að þegar ég kom í Þórshamar í morgun, þá hafði ég ekki fengið nein skilaboð um að óskað væri eftir því að fundinum yrði frestað og mér hafa ekki enn borist nein formleg skilaboð um það að slík ósk hafi legið fyrir.