Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Með þessu frv. er því lýst yfir að íslenska ríkið, þjóðin, sé eigandi lands og landsréttinda á þjóðlendum sem eru ekki þegar háð einkaeignarrétti. Það er grundvallaratriði sem við jafnaðarmenn styðjum að sjálfsögðu.
Með frv. er hæstv. forsrh. aftur á móti fært allt of mikið einræðisvald á framkvæmd laganna og framsal löggjafarvaldsins til ráðherra er afar óeðlilegt, m.a. er varðar ákvarðanir um gjaldtöku og ráðstöfun hennar og allar málsmeðferðarreglur vantar, t.d. um úthlutun leyfa vegna nýtingar á þjóðlendum, auk þess sem ekki er nægjanlega tekið tillit til umhverfismála og náttúruverndarsjónarmiða. Við þau atriði eru fluttar brtt. en að öðru leyti styðjum við jafnaðarmenn meginefni þessa frv.