Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Þriðjudaginn 12. maí 1998, kl. 19:31:52 (6534)

1998-05-12 19:31:52# 122. lþ. 125.2 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 122. lþ.

[19:31]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Hverju náði Framsfl. fram í þessu frv., í frv. sem tryggir einkaaðilum eignarhald yfir auðlindum á borð við það sem einvörðungu þekkist í Bandaríkjunum, einu ríkja innan OECD, varðandi olíu. Ég rakti það í ræðu minni að hvergi á byggðu bóli hafa menn gengið eins langt í þessum efnum og íslenska ríkisstjórnin, ef undan er skilin Bandaríkjastjórn gagnvart olíunni.