Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Miðvikudaginn 13. maí 1998, kl. 11:59:00 (6564)

1998-05-13 11:59:00# 122. lþ. 126.1 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 126. fundur, 122. lþ.

[11:59]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Eins og hv. þingmönnum er væntanlega ljóst áttu forsetar þingsins fund með þingflokksformönnum um það efni sem hér var rætt áður, um þá atkvæðagreiðslu sem er yfirstandandi og þinghaldið að öðru leyti. Forseti vill geta þess að þessir aðilar munu hittast aftur að aflokinni þeirri atkvæðagreiðslu sem nú er í gangi, þ.e. niðurstaðan er sú að atkvæðagreiðslunni mun fram haldið.