Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Hiti í jörðu er auðlind sem er sambærileg við olíu. Það er auðlind sem ekki er endurnýjanleg heldur eyðist þegar af er tekið og það er auðlind sem getur átt uppruna sinn á mjög stóru jarðsvæði. Fyrir 25 árum leiddu nágrannar okkar, Norðmenn, það í lög hjá sér að öll olía sem finnast kynni á norsku landi yrði sameign þjóðarinnar en ekki eign einstaklinga. Nú ætlar ríkisstjórn Sjálfstfl. og Framsfl. að bregðast þannig við gagnvart íslenskum hagsmunum að lögleiða að allur jarðvarmi sem finnist á einkaeignarjörð, hversu djúpt ofan í jörð menn þurfa að seilast eftir honum, skuli teljast einkaeign. Þetta lýsir, virðulegi forseti, allt öðrum viðhorfum hæstv. ríkisstjórnar Sjálfstfl. og Framsfl. gagnvart almannahag en jafnaðarmannaríkisstjórna í Noregi og á öðrum Norðurlöndum.