Húsnæðismál

Föstudaginn 15. maí 1998, kl. 12:37:20 (6611)

1998-05-15 12:37:20# 122. lþ. 128.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 122. lþ.

[12:37]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Það er náttúrlega alveg dæmalaust þegar menn eru að fullyrða um mörg hundruð, sex hundruð, ég held sex hundruð á ári eða sex hundruð á missiri sem ekki fái úrlausn og séu á götunni og nota um þetta stór orð. Ég tel að lágtekjufólk fái betri og farsælli úrlausn í nýju kerfi en það hefur fengið í þessu.