Húsnæðismál

Mánudaginn 18. maí 1998, kl. 12:08:24 (6712)

1998-05-18 12:08:24# 122. lþ. 130.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 122. lþ.

[12:08]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Stofnun þessa nýja banka felur í sér markaðsvæðingu á félagslega íbúðalánakerfinu og að allri félagslegri aðstoð verði vikið til hliðar sem veitt hefur láglaunafjölskyldum tugþúsundum saman í 70 ára sögu félagslega íbúðalánakerfisins öryggi í húsnæðismálum.