Húsnæðismál

Mánudaginn 18. maí 1998, kl. 12:16:28 (6719)

1998-05-18 12:16:28# 122. lþ. 130.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 122. lþ.

[12:16]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér er kveðið á um að framkvæmdastjóri ráði starfsfólk Íbúðalánasjóðs. Ávallt þegar breytt hefur verið um rekstrarform á opinberum stofnunum eða starfsumhverfi þeirra hefur starfsfólki með lögum verið tryggður forgangur til starfa. Ráðherra atvinnumála breytir nú þessari hefð og neitar að tryggja starfsfólkinu forgang.

Hér er um að ræða nýja stefnu í starfsmannamálum undir forustu atvinnumálaráðherrans. Hér er níðst á starfsfólki og rétti þess. Skömmin og ábyrgðin á því er atvinnumálaráðherrans.