Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Í umfjöllun um þetta mál hefur verið harðlega gagnrýnt, m.a. af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, að frv. tryggir engan veginn að sveitarfélögin komi til móts við það fólk sem þarf á húsnæði að halda. Það er engin slík trygging og það þýðir ekki að vísa til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þar er orðalagið einnig mjög veikt. Algjörlega skortir á að tryggt sé að þeim breytingum sem hér er verið að boða verði fylgt eftir.
Þetta er skref aftur á bak, hæstv. forseti, og ríkisstjórnin verður að bera ábyrgð á þessu máli.