Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Þetta ákvæði um að félagasamtök eigi kost á húsbréfum mun hvorki nýtast búsetahreyfingunni, námsmönnum, fötluðum né öðrum félagasamtökum meðan ekki er opnað á 25% viðbótarlán til þeirra einnig. Svona sýndarmennskuákvæði er ekki hægt að styðja.