Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það sem felst í þessari grein er sennilega það alvarlegasta sem í þessu frv. felst varðandi tekjulægsta fólkið og stöðu þess í húsnæðismálum. Þessi grein þýðir að láglaunafólk þarf í öllum tilvikum að reiða fram sem nemur a.m.k. 10% af kaupverði þeirrar íbúðar sem það er að reyna að komast yfir. Það þýðir að þröskuldur er settur í veg fyrir það að þúsundir lágtekjufjölskyldna geti nokkurn tíma eignast sitt eigið húsnæði.
Það kann að vísu að vera að í einhverjum tilvikum eigi einstæðir foreldrar 500 þús. kr. á bankabók og bíði eftir því að kaupa sína fyrstu íbúð eins og hæstv. félmrh. orðaði það svo fallega á föstudaginn var. Mér er þó ekki grunlaust um það, herra forseti, að þeir séu fleiri einstæðu foreldrarnir sem ekki sjá fram úr því að yfirstíga þann þröskuld sem ríkisstjórnin er með þessum breytingum að setja í veg fyrir að slíkt fólk komist í eigið húsnæði.