Húsnæðismál

Mánudaginn 18. maí 1998, kl. 13:22:05 (6755)

1998-05-18 13:22:05# 122. lþ. 130.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 122. lþ.

[13:22]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér er kveðið á um að stjórn Íbúðalánasjóðs skuli skipuð í fyrsta sinn frá og með 1. janúar 1999. Helmingaskiptastjórn íhalds og Framsfl. fær bitlinga til að deila á milli sín. Það er hluti þess hráskinnaleiks sem hér fer fram á kostnað láglaunafólks.